Innlent

Vilja nýjan pott og segja þann gamla vera slysa­gildru

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vel fór á með þeim Helgu Guðrúnu Gunnarsdóttur og Ásdísi Kristjánsdóttur þegar hinni síðarnefndu var afhentur undirskriftarlisti íbúa vegna Kópavogslaugar.
Vel fór á með þeim Helgu Guðrúnu Gunnarsdóttur og Ásdísi Kristjánsdóttur þegar hinni síðarnefndu var afhentur undirskriftarlisti íbúa vegna Kópavogslaugar. Helga Guðrún Gunnarsdóttir

Rúmlega sex hundruð íbúar á Kársnesi hafa skorað á bæjaryfirvöld í Kópavogi að útbúa nýjan kaldan pott og infrarauðan klefa í Kópavogslaug. Talsmaður hópsins segir núverandi pott vera slysagildru. Bæjarstjóri segir tillit verða tekið til ábendingana í vinnu næstu fjárhagsáætlunar.

Helga Guðrún Gunnarsdóttir, íþrótta-og heilsufræðingur er talsmaður hópsins. Hún starfar hjá Kópavogsbæ sem þolfimisþjálfari og heldur utan um tíma í þolfimi í vatni sem fram fara í Kópavogslaug. Hún segir í samtali við Vísi að Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hafi tekið vel á móti sér í ráðhúsinu.

Þurfa að klöngrast upp tvær stáltröppur

„Það hefur verið mikil óánægja meðal sundlaugargesta með þennan kalda pott. Hann var í raun hugsaður til bráðabirgða og ég var alltaf að heyra af þessari óánægju, svo ég ákvað bara að ganga í málið,“ segir Helga Guðrún en potturinn er afar lítill og komast einungis tveir fyrir í honum.

Hún bendir á að stíga þurfi upp tvær járntröppur og svo klofa yfir brún kalda pottsins til þess að komast í hann. „Það sækja 1500 manns laugina á hverjum degi og fólk hefur talað um þetta lengi, því það eru ýmsir sundlaugagestir sem geta ekki komið sér í pottinn, eru kannski með stálmjöðm eða þess háttar.“

Einungis tveir komast fyrir í pottinum og eiga margir hverjir erfitt með eða geta alls ekki komist í pottinn vegna aðgengismála. Aðsend

Því hafi Helga gengið í verkið og voru íbúar fljótir að flykkja sér að baki málstaðnum og skrá nafn sitt á undirskriftarlistann. Helga tekur fram að Kópavogsbær sé heilsueflandi bær og hafi haldið á slíkum málum af myndarskap undanfarin ár.

„Þetta er nefnilega svo mikil heilsulind. Kaldur pottur bætur heilsu og Kópavogsbær hefur alltaf sinnt þessum málum vel. Það er í raun sparnaður fólginn í því að koma nýjum potti fyrir og infrarauðum klefa því bærinn fær þetta borgað margfalt til baka með bættri heilsu fólks.“

Rennibrautir og flísar endurnýjaðar

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, segir í svörum við fyrirspurn Vísis vegna málsins að frábært sé að finna fyrir áhuga þeirra 600 íbúa sem skrifa undir áskorunina.

„Við erum að sjálfsögðu alltaf tilbúin að hlusta á það sem má gera betur og tökum vel í góðar tillögur er snúa að því að bæta bæinn okkar.“

Gert sé ráð fyrir því í fjárhagsáætlun þessa árs að rennibrautir og flísar á útilaugum Kópavogslaugar verði endurnýjaðar.

„En við erum bundin af áætlun hvers árs. Það verður því klárlega tekið tillit til þessara ábendinga í vinnu næstu fjárhagsáætlunar.“


Tengdar fréttir

Þetta er upp­á­halds sund­laug Ís­lendinga

Sundlaug Akureyrar er uppáhalds sundlaug Íslendinga, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fréttastofa sótti tvær vinsælustu laugar landsins heim í dag. Heildarniðurstöður má nálgast neðst í fréttinni.

Upp­sagnir í Kópa­vogi og stöðu­gildum fækkað

Stöðugildum fækkar um fjögur vegna skipulagsbreytinga á vegum Kópavogsbæjar sem tengjast starfsemi menningarhúsa bæjarins og samþykktar voru á bæjarstjórnarfundi í gær. Stöðugildum verður fjölgað um þrjú við Gerðarsafn. Alls munu níu missa vinnuna vegna skipulagsbreytinga hjá Kópavogsbæ.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×